veiðigjald.
Virðulegur forseti. Hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson svaraði ekki spurningunni um það hvort hann myndi fara með rétt mál heldur fór í hártoganir um það hvort rétt væri að vera með þetta fyrirkomulag í verðlagningu á fiski eða ekki. En ég treysti því að hv. þingmenn fari með rétt mál í ræðum sínum framvegis nú þegar það er orðið skjalfest hér í þingsal að búið sé að leiðrétta þann misskilning, sem kemur ekki bara fram hjá hv. þingmanni heldur mörgum öðrum þingmönnum, að hér sé verið að verðleggja aflann bara einhvern veginn út í loftið og eftir því sem mönnum sýnist. En það er ekki það sama að miða við fiskverð sem er í vinnslunum og síðan jaðarverð sem eru á mörkuðum. Það er til að svara spurningu hv. þingmanns.