156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:45]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir seinna andsvar. Það er ágætt, fyrst hann er kominn hér í einhvers konar útskýringarhlutverk fyrir okkur hin, að við svörum þeirri spurningu hvernig aflaverðmæti er metið í núgildandi lögum til útreiknings reikningsstofnsins. Þar kemur einfaldlega fram að Fiskistofa safnar gögnum um magn og verðmæti varðandi þann afla sem er í beinni sölu og þann afla sem seldur er í gegnum fiskmarkaði. Þannig liggja fyrir upplýsingar Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs um fiskverð á hverjum tíma. Ákvörðun varðandi Verðlagsstofu skiptaverðs byggir einfaldlega á því að safna gögnum frá þeim aðilum sem eru m.a. að selja í innri viðskiptum innan eigin samstæðu og út frá því er reiknað einhvers konar meðaltal sem er það verð sem veiðigjaldið byggir á. Þannig hafa aðilar — jú, þeir koma að því að ákveða verðið sem meðaltalið byggist svo á sem veiðigjaldið er reiknað eftir.

Ég veit þetta hljómar flókið en til að einfalda er þetta í grunninn svona: Við erum að leggja til breytingu til að veiðigjaldið sé reiknað út frá raunverulegu virði aflans en ekki því verði sem verður til að meðaltali í innri viðskiptum innan samstæðu stórútgerðarinnar.