156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[20:46]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Virðulegur forseti og hv. þingmenn. Við ræðum hér í dag eitt mikilvægasta hagsmunamál þjóðarinnar, hvernig sanngjarnt gjald fyrir nýtingu á auðlind, sem við eigum öll saman, verður til. Við ræðum veiðigjöld. Þar eru lagðar til breytingar á skráðu aflaverðmæti fyrir tiltekna nytjastofna við útreikning reiknistofns veiðigjalds samkvæmt lögum um veiðigjald, nr. 145/2018. Markmið frumvarpsins er að tryggja að reiknað aflaverðmæti eða veiðigjaldsstofninn endurspegli raunverulegt aflaverðmæti og þar með réttlátt auðlindagjald fyrir aðgang að auðlindinni, hvernig við ætlum sem þjóð að skipta gæðunum og ábyrgð.

Það er auðvitað ekkert launungarmál að frumvarpið snertir vissulega alls konar taugar hjá fólki og tilfinningar. Fyrir meiri hluta þjóðarinnar snýst þetta mál um réttlæti, sátt í samfélaginu, skýra framtíðarsýn, gegnsæi. En fyrir fólk sem starfar í sjávarútvegi eða býr í samfélögum sem reiða sig mikið á sjávarútveg koma vafalaust upp aðrar tilfinningar; ótti, óöryggi og tilfinning um ófyrirsjáanleika. Það er skiljanlegt, það gerist í svona umræðum. En það er síðan okkar stjórnvalda að feta þann veg að tryggja þjóðinni sanngjarnan hlut af auðlindinni án þess að kippa stoðum undan greininni, sem er auðvitað ein af grundvallarstoðum íslensks samfélags. Það er okkar hlutverk að hrekja þessar tilfinningar og segja með vissu og upplitsdjörf að það sé ekkert að óttast.

Forseti. Okkur hættir svolítið til í íslenskri umræðuhefð, sem mér finnst alla jafna nokkuð ógagnleg, að skipa okkur í fylkingar, skipta okkur í lið og umræðan um veiðigjöld kristallar nákvæmlega þá ómenningu okkar. Fyrirtæki í sjávarútvegi eru alls konar, allt frá litlum útgerðum yfir í meðalstórar og svo þekkjum við flest stórútgerðina. Þar að baki eru einstaklingar, fjölskyldur, starfsmenn og samfélög sem oft hafa lagt allt undir, oft kynslóð eftir kynslóð. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við náum að sneiða fram hjá svarthvítri umræðu í þessum þingsal, hlusta á sjónarmið hvert annars og tryggja að það frumvarp sem hér um ræðir nái að þjóna tilgangi sínum.

Þetta snýst um það hvernig við sem þjóð viljum skipta gæðum og ábyrgð. Markmiðið með frumvarpinu er m.a. að tryggja aukinn fyrirsjáanleika og gagnsærri leið til að reikna stofn veiðigjaldsins. Hlutfallið er óbreytt. Það verður áfram 33%. Áfram verður heimilt að draga veiðigjald frá tekjuskattsstofni sem er veruleg ívilnun. Þess ber að geta að síðasta ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og VG áformaði að hækka veiðigjaldið og hlutfallið upp í 45%. Það var þeirra plan, hrein hækkun á þessu hlutfalli án útfærslu. Þetta var plan fyrri, hvað eigum við að segja, vinstri stjórnar; það hefur verið svolítið vinsælt að tala um vinstri stjórn hér í dag.

Í þessu frumvarpi hæstv. atvinnuvegaráðherra er bara verið að breyta viðmiðum við útreikning reiknistofns veiðigjaldsins. Miðað við hitann í umræðunni mætti ætla að ríkisstjórnin væri að kollvarpa kvótakerfinu og banna samþættingu veiða og vinnslu. Það er bara ekki svo, virðulegur forseti. Vinnslur geta áfram keypt afla af eigin útgerð á verði sem er langt undir markaðsverði. Það er ekki verið að girða fyrir þá hagræðingu, bara alls ekki. Það er áfram tekið gjald sem nemur 33% af umframhagnaði fyrirtækisins. Þessu gjaldi er síðan ætlað að tryggja uppbyggingu innviða og ekki veitir af. Síðasta ríkisstjórn skildi þjóðina eftir með yfir 700 milljarða kr. innviðaskuld og ríkissjóð í halla. Þetta er verkefni sem ný ríkisstjórn þarf að takast á við og þessar áskoranir leysast ekki bara af sjálfu sér. Við þurfum allar hendur upp á dekk til að útrýma þeim þröskuldum sem liggja um allt í formi laskaðra innviða. Ég er að tala um vegasamgöngur, orkuöryggi, atvinnuþróun, byggðastefnu. Veiðigjald er einnig lagt á til að mæta kostnaði ríkisins við rannsóknir, stjórn, eftirlit og umsjón með fiskveiðum og fiskvinnslu og til að tryggja þjóðinni í heild beina og sýnilega hlutdeild í afkomu við veiðar. Þetta er algjörlega á kristaltæru í 1. gr. laga um stjórn fiskveiða. Samkvæmt mati á kostnaði ríkisins af grunn- og þjónusturannsóknum á fiskstofnum eða lífríki hafsins, stjórnsýslu fiskveiða og löggæslueftirliti nam kostnaðurinn um 8 milljörðum kr. Séu önnur framlög úr ríkissjóði sem tengjast rannsóknum, stjórn, eftirliti og umsjón með fiskveiðum og vinnslu tekin með nam heildarkostnaðurinn um 11 milljörðum kr. árið 2023.

Forseti. Þegar frumvarpið kom í samráðsgátt í atvinnuvegaráðuneytinu bárust vissulega margar umsagnir. Þetta voru góðar umsagnir, virkilega góðar. Og ráðuneytið tók þetta til skoðunar og ég veit að hæstv. ráðherra skoðaði umsagnirnar gaumgæfilega og niðurstaðan varð sú að koma enn frekar til móts við lítil og meðalstór fyrirtæki. Hæstv. atvinnuvegaráðherra ákvað að koma til móts við þessi sjónarmið og í því frumvarpi sem hér liggur fyrir liggur fyrir gríðarleg hækkun á frítekjumarki, úr 8 milljónum í 50. Þetta er mikilvægt skref til að vernda lítil og meðalstór fyrirtæki í sjávarútvegi sem oft eru burðarásar í sínum samfélögum. Þetta er mikilvægt skref. Þetta er skýr tónn inn í þessar byggðir. Við ætlum að standa vörð um þær. Samráð og hlustun eru lykilatriði í lýðræðislegu samfélagi. Með því að taka tillit til sjónarmiða hagsmunaaðila er tryggt að lagasetningin sé réttlát og raunhæf.

Við í Viðreisn teljum að þjóðin eigi að fá sanngjarna hlutdeild í arðinum af auðlindinni. Veiðigjöld eiga að tryggja að þessi arður skili sér síðan til samfélagsins til að fjármagna velferðarkerfið og innviði. En við viljum líka að ágóðinn af auðlindunum renni aftur í innviðauppbyggingu á svæðunum þar sem verðmætin verða til. Sjávarútvegurinn skiptir okkur gríðarlega miklu máli og það er mikilvægt að tryggja skýrt rekstrarumhverfi fyrirtækja sem þar starfa. En í þessu frumvarpi er ekki verið að hrófla við neinu sem snýr að rekstrarumhverfi. Samþætting veiða og vinnslu er áfram leyfð. Fyrirtæki geta áfram keypt fisk í vinnslurnar sínar af eigin útgerð.

Í greinargerð frumvarpsins, sem er ítarleg og góð, kemur fram að í umsögn samtaka smærri útgerða var bent á að litlar og meðalstórar útgerðir væru að berjast í bökkum í heilsársrekstri og myndi frumvarpið, yrði það að lögum, leiða til þess að útgerðum myndi fækka og samþjöppun aukast. Það er því mikilvægt að ítreka að í frumvarpinu eru ekki lagðar til breytingar sem leiða til frekari samþjöppunar í sjávarútvegi. Hér er brugðist við áhrifum á litlar og meðalstórar útgerðir með verulegri hækkun frítekjumarks. Síðan eru skorður á samþjöppun auðvitað lögfestar í lögum. Við þekkjum það. Í þessu frumvarpi er ekki verið að gera breytingar sem hafa áhrif á rekstrarskilyrði fiskvinnslna, heldur er eingöngu verið að leiðrétta það hvernig veiðigjöldin eru reiknuð út, hver gjaldstofninn á að vera. Í áhrifamati frumvarpsins kemur einnig skýrt fram að þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu séu ekki til þess fallnar að veikja samkeppnisstöðu sjávarútvegs nema að óverulegu leyti og frumvarpið felur heldur ekki í sér fjárhagsleg áhrif á tekjur eða útgjöld sveitarfélaga. Þetta hefur verið mikið rætt hér í dag og ég myndi alveg skilja umræðuna ef þetta væri frumvarp um það að banna samþættingu veiða og vinnslu. Þetta er bara ekki þannig frumvarp.

Frú forseti. Ríkisstjórnin er einhuga um þessar breytingar. Það verður ekki rekinn fleygur á milli flokkanna þriggja sem koma að þessu máli. Ég hlakka til að fylgjast áfram með umræðunum og mun taka málefnalega gagnrýni alvarlega. Málið fer í þinglega meðferð, í umsagnarferli og gestakomur í atvinnuveganefnd sem ég sit í. Ég hlakka mikið til að takast á við þetta stóra mál. En það skiptir öllu máli að vanda til verka, tryggja að við hér inni getum átt uppbyggilegt og gott samtal um þetta grundvallarmál. Ég ætla mér alla vega að sitja hér og hlusta, skynja og skilja, á minni hlutann en líka á meiri hlutann. Auðvitað er það svo að þegar breytingar eru gerðar sem geta haft áhrif á atvinnustarfsemi þá skiptir miklu máli að tryggja samtal og samráð. Þegar frumvarpið var fyrst lagt fram spurði ég mig alveg spurninga sem þingmaður Norðvesturkjördæmis um áhrif frumvarpsins á sveitarfélög, hver áhrifin yrðu á lítil eða meðalstór fyrirtæki. Mun frítekjumarkið sem boðað var þá duga til? Þetta voru mínar vangaveltur í fyrsta kasti og spurningar sem ég spurði á þingflokksfundum. Við áttum bara ótrúlega góð samtöl um þessar áskoranir. En ég ítreka: Hæstv. ráðherra hefur hlustað á þessi sjónarmið í góðu samtali og góðu samráði við hagaðila. Hún kemur hér fram með frumvarp sem sefar að mínu mati þessar áhyggjur mínar. Það er ekkert leyndarmál að það hefur verið töluvert á reiki hvernig veiðigjaldið er fengið. Það hefur stundum verið fullkomlega háð geðþótta stjórnmálanna hverju sinni. Talandi um fyrirsjáanleika, það er enginn fyrirsjáanleiki fólginn í því ef stjórnmálamenn geta komið og hróflað í veiðigjaldinu með engum fyrirvara. Mér finnst mjög gott skref núna að fara þessa gegnsæju leið í útreikningunum og það á þá bara að halda. Svo auðvitað sveiflast veiðigjaldið eftir því hvort það gengur vel eða ekki. Þetta sést t.d. á áformum síðustu ríkisstjórnar sem ætlaði að hækka veiðigjöldin án áhrifamats. En munum það að ef hagnaðurinn er lítill þá lækka gjöldin og öfugt. Þetta er ekki fasti, þetta er hlutfall.

Forseti. Ég fagna umræðunni hér í dag. Ég fagna því að Viðreisn sé hér í fararbroddi við að standa við loforð um aukið gagnsæi og réttláta skiptingu. Markmiðið er réttlátt gjald fyrir auðlindirnar okkar, sem er nákvæmlega það sem þjóðin hefur kallað eftir um árabil. Svo er það okkar að standa undir því að nýta fjármunina sem koma inn í kassann til að tryggja innviðauppbyggingu á þessum svæðum. Það er eitthvað sem öll þjóðin hefur kallað eftir í langan tíma.

Forseti. Það urðu hér hrein stjórnarskipti. Þjóðin kaus breytingar, hún kaus réttlæti og hún kaus almannahagsmuni. Það er nákvæmlega það sem þjóðin mun fá með Viðreisn, Samfylkingu og Flokk fólksins í fararbroddi.