veiðigjald.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir andsvarið og þakka honum fyrir að rifja upp kosningabaráttuna vegna þess að hún var skemmtileg og snörp. Ég minnist þess reyndar ekki að hafa heimsótt fiskvinnslufyrirtæki með hv. þingmanni, hann er kannski að rugla saman við einhvern annan, en ég man eftir umræðum um sjávarútveg þar sem ég talaði einmitt um að við ættum ekki að fara út í einhvers konar kollvörpun á sjálfu sjávarútvegskerfinu. Það er gott og já, ég er sammála hv. þingmanni um að aukin verðmætasköpun er auðvitað markmið okkar og á að vera markmið okkar allra, hvort sem er í sjávarútvegi eða í öðrum atvinnugreinum. Við eigum að styðja við atvinnuuppbyggingu og helst tryggja að við séum ekki með öll eggin í sömu körfunni hvað það varðar. Það hefur því miður gerst svolítið á mínu heimasvæði í sögunni, en það er að breytast sem betur fer og fleiri stoðir að koma undir. Ég verð að koma að því í síðara andsvari hvaða áhyggjur ég hef af þessum litlu og meðalstóru fyrirtækjum.