156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[21:04]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir síðara andsvar og ég er bara sammála þessu. Ég var sjálf að klöngrast við nákvæmlega sömu hugsun vegna þess að þetta ætti auðvitað frekar að heita afsláttur eða eitthvað svoleiðis. En mér skilst að þetta séu leifar af því hvernig þetta var sett fram 2012. Mér finnst það bara mjög áhugaverðar umræður að skoða hvort þetta ætti að heita frítekjumark eða afsláttur og ég er bara sammála því. Hvað varðar litlu og meðalstóru fyrirtækin, ég ætla ekki að gleyma því, hafði ég miklar áhyggjur vegna þess að í okkar kjördæmi er það auðvitað þannig að það er ekkert eitt stórt fyrirtæki þannig séð, þau eru mörg meðalstór og svo lítil, en mér finnst hæstv. atvinnuvegaráðherra hafa mætt þessum sjónarmiðum með myndarlegum hætti. Miðað við þær greiningar sem ég sé, miðað við opinber gögn og annað, þá hef ég rólega tilfinningu í maganum.