veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir yfirvegaða ræðu. Ég verð að viðurkenna að áhyggjur mínar hafa bara hvergi horfið. Ég vil spyrja hv. þingmann: Hvar í frumvarpinu les þingmaðurinn þær greiningar að þessi tvöföldun hafi engin áhrif á þessi sveitarfélög — ekki að einhverjir stjórnmálamenn geti komið og hróflað við kerfinu eins og hv. þingmaður orðaði það heldur kollvarpað því með því að tvöfalda veiðigjaldið með engum fyrirvara? Hvar stendur það í frumvarpinu að það hafi engin áhrif á sveitarfélög? Hvar stendur það í frumvarpinu eða í greiningum að það hafi engin áhrif á byggðarlög? Hvar stendur það í frumvarpinu að það hafi engin áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki? Ég sé setningarnar í greinargerðinni þar sem stendur að það hafi engin áhrif en ég sé engar greiningar, ekki nokkrar einustu. Ég hef hins vegar lesið umsagnir einstakra fyrirtækja, m.a. af svæði hv. þingmanns, sem segja að þetta hafi veruleg áhrif á fjárfestingargetu þeirra og þó svo að frítekjumarkið, sem er nú umdeilt hugtak, sé svona og hinsegin muni það ekki breyta því að þetta muni skerða fjárfestingargetu. Og ég veit að nú þegar hefur þetta haft þau áhrif að í kjördæmi þingmannsins hafa fyrirtæki þegar frestað fyrirhuguðum fjárfestingum í sumar sem mun ekki koma niður á sjávarútvegsfyrirtækjum öðruvísi en að þau fái ekki sína aðstöðu, heldur á öllum iðnaðarmönnum svæðisins. Hvernig má annað vera ef þú tekur 10 milljarða út úr grein sem meira og minna er úti um land? Hvernig má það vera að það hafi engin áhrif á einn né neinn? Það stendur ekki í frumvarpinu sem ég las.