veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir afbragðsspurningar. Mig langar að ítreka það að markmið ríkisstjórnarinnar var ekki að tvöfalda veiðigjaldið. Það var ekki þannig að hæstv. atvinnuvegaráðherra settist niður og segði: Nú ætla ég að tvöfalda það. Það var farið í þá vegferð að finna nýjan grunn á því hvernig veiðigjaldið er reiknað út og afleiðingin af þeim útreikningum var þessi. Í raun og veru er þetta ekki tvöföldun, þetta eru 55%. Mér reiknast svo til með mína menntaskólastærðfræði að það sé ekki tvöföldun. Hvar finn ég þessi atriði? Jú, ég finn þetta í greinargerðinni. Þar kemur fram að frumvarpið hafi ekki áhrif á rekstrargrundvöllinn og rekstrarskilyrðin og það er auðvitað lykilatriði hér að ekki er verið að tala um afnám samþættingar veiða og vinnslu eða þess háttar heldur bara hvernig þessi grunnur er reiknaður út.