veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég veit að þessar setningar standa í frumvarpinu en ég sé bara engar greiningar sem sýna mér fram á það. Ég hef hins vegar séð umsagnir frá einstökum fyrirtækjum og einstökum sveitarfélögum sem segja algerlega hið gagnstæða. Og ég hef séð eða heyrt af því sem fyrirtæki hafa verið að reikna út og að kostnaður ákveðins byggðarlags verði 140% en ekki 55%. Það stendur ekkert í þessu frumvarpi sem getur sannfært mig um að ekki sé verið að leggja á verulegar byrðar, enda er verið að taka 10 milljarða meira og minna af landsbyggðinni og færa til Reykjavíkur. Sá sem getur sagt mér að það skipti engu máli að taka 10 milljarða í burtu úr samfélögunum úti á landi, að það hafi ekki nokkur áhrif, hlýtur að vera mikill kraftaverkamaður, ef það er hægt.
Síðan vil ég segja — af því að mér fannst ræða þingmannsins yfirveguð og hún tók tillit til þeirra sjónarmiða sem ég er að hafa áhyggjur af, sjónarmiða byggðarlaganna úti á landi, litlu samfélaganna, litlu fyrirtækjanna sem augljóslega verða fyrir verulegum búsifjum af þessu og ekkert í frumvarpinu sýnir mér enn þá fram á að svo sé ekki — að ég hef líka velt því fyrir mér að þetta er sett fram hér sem leiðrétting og réttlæti og að hér sé tilraun til að ná sátt í sjávarútvegi. Sátt við hverja? Sátt við fólkið sem lifir í umræddum byggðarlögum og á alla sína afkomu undir því að þessir 10 milljarðar séu hjá þeim en ekki ríkissjóði? Hvernig verður sátt til? Það gerist ef menn tala inn í hana og hv. þingmaður gerði það. Hv. þingmaður reyndi að tala með þeim hætti að það væri málefnaleg umræða. Því er ekki að heilsa um alla hv. þingmenn hinnar samhentu ríkisstjórnar sem æsa upp skotgrafirnar alveg hægri og vinstri og jafnvel hæstv. ráðherra hefur líka gengið svo langt.