veiðigjald.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir síðara andsvar og ég hygg að við deilum því áhugamáli að reyna að standa okkur málefnalega í þessari pontu og tala um efni máls og staðreyndir en ekki tilfinningar. Það er nú þannig að hér er um að ræða 7 milljarða en ekki 10 og það eru tíu stærstu fyrirtækin sem greiða um 70% af þessum veiðigjöldum. Frítekjumarkið eða afslátturinn, nýyrði sem er hér að fæðast, á að koma til móts við þetta. Og aftur: Hvar eru greiningarnar? Ég spyr þá bara á móti: Hvar eru þá greiningar þeirra sem segja að hér fari allt í bál og brand? Ég hef heldur ekki séð einhverjar staðfestar tölur um að svo verði. Árið 2012 héldu menn hamfararæður um að allt myndi fara til fjandans en reyndin varð sú að eiginfjárstaða útgerðarinnar voru 100 milljarðar en eru 500 milljarðar í dag. Frábært blómaskeið íslensks sjávarútvegs blasir við okkur. Við erum stolt af íslenskum sjávarútvegi. Hann skiptir okkur máli. Hann gerir það. Ég er frá litlu fiskiþorpi vestur á fjörðum þar sem einu sinni var kvóti. Það er ekki lengur svo. Það eru alls konar sögur í fjörðunum í kringum landið, alls konar sögur og alls konar tilfinningar. Ég held að það sé bara okkar hlutverk núna að ná að kjarna þetta niður til að tryggja sátt. Þingmaðurinn spyr: Sátt við hvern? Ég held að við séum í góðu færi til að reyna að tryggja einhvers konar sátt við þjóðina, sátt við firðina, hætta þessari tortryggni milli höfuðborgar og landsbyggðar og reyna að leiða þetta mál í jörð. Ég veit að hv. þingmaður hefur verið áhugamaður um það um langt skeið og ég vona að hv. þingmaður komi í þá vegferð með okkur.