veiðigjald.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar ræðu. Það kom fram í máli hv. þingmanns að þær áhyggjur sem landsbyggðin og kjósendur hennar í Norðvesturkjördæmi hafa vegna þess sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ætlar að gera, að taka tugi eða hundruð milljóna úr hennar kjördæmi í auknum sköttum, væru óþarfar. Það eru óþarfa áhyggjur. Þessar áhyggjur, ótti og hræðsla sem koma fram séu einhvers konar falstilfinningar sem séu ástæðulausar því að hér sé um sanngirnismál að ræða. Hughreystandi gaslýsing.
Nú hefur hæstv. atvinnuvegaráðherra sagt að þetta sé einungis fyrsta skrefið í þessum aðgerðum og hv. þingmaður hefur talað um að hafa þessi mál upplýst, hafa fyrirsjáanleika. En ég held að kjósendum þætti það gott, sérstaklega í kjördæmi hv. þingmanns, að fá að vita hver eru næstu skref í þessum skattahækkunum þannig að fyrirsjáanleikinn sé einhver.