156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[21:14]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir nokkuð kaldar kveðjur. Ég held að ég vilji frekar senda honum ljós en gasljós og held að það sé kannski betur til þess fallið að leiða hér góða umræðu um þessi mál. Ég kannast ekki við að hafa heyrt hæstv. atvinnuvegaráðherra boða frekari skatta, breytingar eða annað. Það er ekkert í þingmálaskrá eða stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar þar að lútandi þannig að hv. þingmaður er að segja mér fréttir.