veiðigjald.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svar við andsvari. Fólki verður tíðrætt hér um einhvers konar sanngjarnt og réttlátt gjald og nefnir þá Noreg. Í minnisblaði sem var búið til fyrir ríkisstjórnina varðandi þessar skattahækkanir kemur fram að sú verðmyndun og sá samanburður sé ekki góður. Svo að ég vísi beint í það blað hér þá kemur fram að verðmyndun á milli landanna skekkist vegna fyrirkomulags í veiðum og vinnslu. Hérlendis sé fyrirkomulagið markað af því að veiðar og vinnsla eru á sömu hendi en í Noregi hafi verið ákveðið í gegnum sölusamtök í eigu útgerðarinnar að keypt sé af sjálfstæðum aðilum.
Spurningin er þá þessi: Grunnurinn á þessu máli öllu saman er útreikningur frá Noregi sem kemur fram í þessu minnisblaði að sé vissulega mjög varhugaverður. Þegar grunnurinn í málinu er þannig er málið allt á einhverjum fölskum forsendum reist. Ég myndi vilja fá svör við því hjá hv. þingmanni hvað honum finnist um þetta og hvort þetta minnisblað skipti engu máli.