veiðigjald.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir síðara andsvar. Þessi minnisblöð voru unnin í flýti í stjórnarmyndunarviðræðum og ég veit til þess að tekið var tillit til allra þeirra sjónarmiða sem þar komu fram og málin voru unnin á mun dýpri hátt þegar hæstv. ráðherra tók við stjórnartaumunum. En mig langar aðeins að taka eitt dæmi varðandi umræður um gjaldtöku. Ef foreldrar selja barni sínu fasteign á undirverði þá geta þau ekki sannfært stjórnvöld um að greiða fasteignagjöld miðað við það verð. Fasteignagjöldin eru reiknuð út með því að skoða skráð viðskipti og bera saman sambærilegar eignir. Þú kemst ekkert upp með að greiða lægra fasteignagjald með því að selja frænda þínum hús á undirverði. Með sama hætti eiga útgerðir að greiða veiðigjöld út frá markaðsverði en ekki verði innri viðskipta fyrirtækja.