veiðigjald.
Herra forseti. Í ljósi þeirra ummæla sem féllu hér áðan í andsvörum frá hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur finn ég mig knúinn til að nefna það, áður en ég ber upp spurningar, að greiningar eru á ábyrgð þeirra sem leggja frumvörp fram. Í þessum sal hefur ítrekað verið bent á skort á greiningum þeirra mála sem lögð eru fram og nægir þar að nefna breytingar á úthlutun byggðakvóta þar sem dæmi eru um allt að 70% skerðingar í byggðakvóta, áhrif á kílómetragjald, á flutninga til og frá landsbyggðinni, og hér í þessu frumvarpi skortir hið sama, þ.e. greiningu á áhrifum á hinar ýmsu byggðir.
Spurning mín til hv. þingmanns er því þessi: Finnst hv. þingmanni það ásættanlegt að slíkar greiningar skorti og væri samtalið hér í þessum þingsal ekki betra ef þær greiningar lægju fyrir?