veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir andsvarið. Og jú, almennt tel ég mikilvægt að byggja umræður á gögnum og greiningum. Ég er búin að lesa þetta frumvarp og sé mikla bragarbót á því. Það eru t.d. komnar greiningar á áhrifum á sveitarfélög og annað og ég held að það sé líka verkefni hjá atvinnuveganefnd að kalla eftir frekari gögnum ef þingmenn eru á því að núverandi greinargerð sé ekki nægilega ítarleg. Mér finnst hún mjög ítarleg. Mér finnst hún gagnleg, sérstaklega þegar maður horfir til þess að þetta frumvarp varðar útreikning á þessum gjaldstofni, ekki sjálft fiskveiðistjórnarkerfið eða hvernig lóðrétt samþætting veiða og vinnslu fer fram eða neitt slíkt. Það er bara verið að tala um gjaldstofninn og þetta er spurning um umframhagnaðinn. Þetta er ekki spurning um að rýra getu fyrirtækjanna til að reka sig.