156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[21:20]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég finn mig eiginlega knúinn, í ljósi svars hv. þm. Maríu Rutar Kristinsdóttur við spurningum mínum, til að minna aðeins á söguna. Ég minni á bifreiðagjaldið, ég minni á þá staðreynd að einungis 38% af tekjum af ökutækjum á árunum 2014–2021 skiluðu sér til uppbyggingar á samgöngumannvirkjum. Fylgni milli skatta og uppbyggingar hefur því ekki beinlínis verið línuleg í samfélagi okkar. Það er hin blákalda staðreynd landsbyggðarinnar að það er alltaf verið að verja auknar álögur með sömu rökunum. Við þurfum þetta fé til að geta lagað til og byggt upp á landsbyggðinni en svo skilar féð sér ekki. Mér finnst því ærandi skortur á frekari greiningu, m.a. á því með hvaða hætti þessar tekjur skila sér til byggðanna og mögulegum neikvæðum áhrifum á getu fyrirtækja til að taka þátt í uppbyggingu í sínu nærsamfélagi.