156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[21:21]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir síðara andsvar og ég verð bara að lýsa því yfir að ég hef einmitt skynjað þessa tortryggni mjög sterkt. Það er innbyggð tortryggni hjá fólkinu í landinu þegar stjórnvöld segja: Nú ætlum við að taka einhver gjöld og ætlum að láta þau gjöld renna inn í samfélögin eða inn í innviðauppbyggingu hvers konar. Þá kemur þessi tortryggni upp og ég hef fundið það mjög sterkt. Þá hef ég reynt að minna landsmenn á þá staðreynd að hér urðu hrein stjórnarskipti. Það er ný ríkisstjórn og ég verð að viðurkenna að ég tek því bara mjög alvarlega að fá tækifæri til að vera hv. þingmaður hér. Og það er það sem við ætlum okkur að standa undir, að sýna það í verki að við breytum leiknum, að við förum í þessar breytingar og sýnum það í verki. Það verður þá bara mælt með tímanum. Við höfum þrjú og hálft ár og við sjáum hvað setur.