veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir góða ræðu og mig langar að fá álit hans á mögulegum hliðarverkunum í frumvarpinu. Hv. þingmaður nefndi það sjálfur í ræðu sinni að þegar rekstur verður erfiðari í fyrirtækjum og jafnvel óbærilegur þá gerist það stundum að stærri fyrirtæki kaupa upp minni fyrirtæki og það er yfirlýst markmið í þessu frumvarpi að það sé ekki þannig. En mig langar að fá álit hv. þingmanns á því hvað hann haldi um það, hvort þetta komi til með að auka samþjöppun á markaði og bara samþjöppun í sjávarútvegi, hvaða líkur hann telur á því að áhrifin verði þau að það verði samþjöppun á markaði.