veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég þakka andsvarið, spurninguna, frá hv. þm. Jóni Pétri Zimsen. Ég þarf ekki að velta vöngum yfir minni skoðun í þessu máli. Við erum þegar farin að sjá afleiðingarnar. Afleiðingarnar eru nú þegar þær að minni fyrirtæki eru til sölu, hafa sett kvótann á markað eða fyrirtækið í meira mæli en við höfum séð á undanförnum árum. Það mun bara fara vaxandi. Þetta ætti kannski ekki að koma neitt sérstaklega á óvart. Þetta er auðvitað stefna Viðreisnar, stefna hægri krata alveg frá því á viðreisnarárunum þegar menn lögðu til að það væru bara eins fá fyrirtæki og hægt væri og það væri hægt að skattleggja þau í botn. Ég trúi hins vegar á fjölbreytileikann og ég trúi því að það sé mikilvægt, og við í Framsókn, að það sé eins fjölbreyttur sjávarútvegur til á Íslandi og hægt er og eins fjölbreytt fyrirtækjaflóra og hægt er, en ekki eingöngu risastór fyrirtæki.
Ég hefði líka áhyggjur af því, eins og ég nefndi, að meira að segja fyrirtækin sem eru almenningshlutafélög á markaði — að ef hluthafarnir fara að færa sig frá sjávarútvegi vegna þess að arðsemin er orðin of lág og yfir á önnur fyrirtæki þá hafi það líka mjög neikvæð áhrif á stærstu fyrirtækin.