veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir gott svar við andsvari mínu. Ég er honum sammála í því sem kom fram í máli hans. En mig langar að gera að máli hér vinnubrögð ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórninni verður tíðrætt um góð vinnubrögð og að lýðræðinu sé sinnt en í þessu máli hafa vinnubrögðin að mínu mati verið sérstök og mig langar að fá álit hv. þingmanns á því. Málið var mjög stuttan tíma í umsagnarferli, styttri tíma en mörg önnur mál. Ríkisstjórnin hefur ekki fengist til að tala við helstu hagsmunaaðila málsins, neitað að hitta þau á fundum. Ég vil því bara spyrja hv. þingmann hvort hann haldi að þetta sé vont mál og ríkisstjórnin hafi eitthvað að fela, hvers vegna þau ræða ekki við helstu hagsmunaaðila sem koma að málinu. Það þurfti að þvinga ríkisstjórnina til að tala við sveitarfélögin, það var ekki gert fyrst. Ég vil því spyrja hv. þingmann hvað honum finnist um þessi vinnubrögð og hvort það sé eitthvað sem hafi komið honum á óvart.