veiðigjald.
Virðulegur forseti. Nú þekki ég ekki nákvæmlega hvernig samtöl hafa verið milli ríkisstjórnar og einstakra hagaðila, ég þekki það ekki. Það eina sem ég hef séð er að málið kom nokkuð skyndilega fram, var aðeins sjö daga í samráðsgátt, eins og ég nefndi, og stærstu hagsmunasamtök í sjávarútvegi, SFS, höfðu ekki tækifæri til að veita umsögn á þeim tíma og óskuðu eftir fresti en fengu ekki. Við sáum líka að í þeim frumvarpsdrögum voru engar greiningar og margt ófullnægjandi sem hefur verið reynt að laga áður en frumvarpið var lagt fram núna. En eins og ég segi, við lestur þess í dag eða gær gat ég ekki séð þessar greiningar sem styðja við þær staðhæfingar sem koma mörgum sinnum fram í frumvarpinu þess efnis að þetta hafi engin áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki, þetta hafi engin áhrif á sveitarfélög, þetta hafi engin áhrif á samkeppnishæfi sjávarútvegsins, að þetta hafi engin áhrif til þess að auka samþjöppun. Ég sé engin gögn sem styðja við þetta. Hvort þessi vinnubrögð koma mér á óvart — þetta á greinilega að vera svona pólitískt flaggskip ríkisstjórnarinnar. Þau pöntuðu skoðanakönnun og það kemur auðvitað ekki á óvart að stór hluti þjóðarinnar styðji það að fá peninga frá einhverjum öðrum. Ef fólk hefði verið spurt hvort það ætti að lækka launin okkar hefðu örugglega 98% stutt það. Það væru bara einhver 2% sem eru tengd okkur sem hefðu ekki verið sammála, þau sem þekkja það hvaða vinna liggur á bak við. En ég held að þetta sé svona flaggskip þeirra. Mér finnst þau fara of bratt fram. Mér finnst asinn á málinu vera óþægilegur. Ég held að afleiðingarnar séu ókunnar, geti orðið mjög neikvæðar, og ég hef áhyggjur af því að það gæti raungerst á næstu árum. Ekki einn, tveir og þrír heldur á næstu árum.