veiðigjald.
Forseti. Þetta eru fínar umræður hér í þingsal, sannarlega, og það þarf engum að koma á óvart að sitt sýnist hverjum um þessi mál. Menn skylmast hér eilítið og vonandi verður það til þess að dýpka skilning fólks á þessu máli og bæta vinnuna þegar inn í nefnd er komið. Ég get hins vegar ekki látið hjá líða að koma hingað upp og bera af mér sakir sem á mig hafa verið bornar, ekki einu sinni heldur tvívegis af hv. þm. Jóni Pétri Zimsen, sem kemur hingað upp í andsvörum við hv. þm. Maríu Rut Kristinsdóttur og heldur því fram að atvinnuvegaráðherra, sú sem hér stendur, hafi lýst því yfir að þessi leiðrétting á veiðigjöldum, sem hún mælir hér fyrir í dag, sé bara fyrsta skrefið á þeirri vegferð að hækka álögur á sjávarútveginn.
Hv. þm. María Rut Kristinsdóttir kemur hingað upp og mótmælir þessu án þess að hv. þm. Jón Pétur Zimsen sjái ástæðu til að draga þetta til baka heldur bítur hann, og ég ætla að leyfa mér að segja það, höfuðið af skömminni með því að koma hingað upp í næstu andsvörum við hv. þm. Sigurð Inga Jóhannsson og halda því fram fullum fetum að ríkisstjórnin hafi neitað að tala við hagsmunaaðila í greininni. Þetta er rangt (Gripið fram í.) og ég myndi segja að hv. þingmaður væri maður að meiri að draga þetta til baka vegna þess að við hljótum að geta gert betur í þessum sal. Ég ætla ekki að sitja undir því að þingmenn sem nenna ekki að vinna vinnuna sína og kynna sér þetta mál ljúgi upp á mig hér í ræðustól Alþingis.