156. löggjafarþing — 34. fundur, 5. maí 2025.
veiðigjald.
351. mál
Herra forseti. Það sem ég hef sagt hér varðandi það að ríkisstjórnin vilji ekki tala við SFS — þau hafa ítrekað leitað eftir fundum (Atvrh.: Og fengið.) og þeir hafa verið í mýflugumynd. Auðvitað er hægt að deila um það hvort slíkir fundir séu þess eðlis að þeir teljist upplýsingafundir. (Atvrh.: Hvaða kjaftæði er þetta?) Menn verða að sýna stillingu í þingsal. Ég fer algjörlega með rétt mál þannig að hæstv. ráðherra verður líka að þola það að það sé ekki allt sem snúist eftir hugarheimi hans.