veiðigjald.
Virðulegur forseti. Ég veit ekki hvort hv. þm. Sigmar Guðmundsson var ekki að hlusta á mig, mér fannst hann horfa svo gáfulega til mín á meðan ég hélt ræðuna að ég hélt að hann hefði hlustað af einbeitingu allan tímann. Ég sagði, held ég, nokkrum sinnum í ræðu minni að við í Framsókn segðum að stærstu fyrirtækin væru aflögufær. Ég lagði meira að segja til aðra leið, að það væri gáfulegra og skynsamlegra að fara skattlagningarleiðina. Ég var ekki sérstaklega hrifinn af því að hækka veiðigjaldið upp í 45%. Það var þó fyrst og fremst á uppsjávarfyrirtækin sem eru þau fyrirtæki sem hafa náð mestri hagræðingu fram í íslenska kerfinu. Sú hækkun átti á einhverjum árum að hækka um 1 milljarð og síðan 2 og síðan 3 en ekki innan eins árs að hækka allt í einu um 7 eða 10 milljarða eða jafnvel meira. Það er talsverður munur á, hv. þingmaður.
Í ræðu minni fór ég yfir mikilvægi þess að það væri fyrirsjáanleiki og það væri skynsemi og að stærstu fyrirtækin sem högnuðust hvað mest gætu án efa greitt meira fyrir þennan aðgang. En það væri ekki eitthvert réttlæti sem gengi yfir allan sjávarútveginn vegna þess að ekki væri hægt að setja sömu mælistikuna á alla. Þessi auðlindarenta lægi ekki í sjónum og allir sem fengju að veiða gætu búið til peninga eða að aðgengið að veiðum tryggði það að allir gætu búið til sömu arðsemina, heldur væri það fólgið í fyrirtækjunum, m.a. mannauðnum hjá þeim fyrirtækjum. En ef það gengi mjög vel þá væri það ekkert ósanngjarnt í mínum huga og okkar Framsóknarmanna að þá greiddu fyrirtækin meira til samfélagsins, þá til að mynda með því að veiðigjaldið væri skynsamlegt en þau greiddu það með hækkuðum þrepaskiptum tekjuskatti.