156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[21:53]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nú er það þannig að hv. þingmaður hefur setið í ríkisstjórn lengi og hann hefur haft ansi mörg og mikil tækifæri til að mæta því sjónarmiði sem er mjög ríkt meðal þjóðarinnar, með réttu, að það sé þannig að þjóðin fái ekki að njóta með þeim hætti sem eðlilegt er afrakstursins af því að eiga fiskinn í sjónum saman. Það hefur hins vegar ekki verið gert. Það hafa stundum komið meldingar um það en svo verður aldrei neitt úr neinu. Menn hafa alltaf lyppast niður þegar hagsmunaaðilar í þessari grein leggjast á flokkana og við skulum hafa það í huga, af því að hér er verið að vísa í sveitarfélög úti á landi — almenningur í þessum sveitarfélögum er þeirrar skoðunar samkvæmt könnunum að hér megi vel breyta og bæta í. Við erum að reyna að finna leið og þetta er mjög sanngjörn og eðlileg leið sem gengur út á það að miða við raunverulegt aflaverðmæti, miða við raunverulegt verð en ekki eitthvert verð sem er búið til í viðskiptum á milli veiða og vinnslu hjá aðilum sem eru í sömu eigu í sama fyrirtækinu.

Mér finnst hv. þingmaður skauta svolítið fram hjá því þegar talað er um skattspor greinarinnar, sem er auðvitað bara mjög góð og gild pæling, að veiðigjaldið er samkvæmt lögum lagt á í tvennum tilgangi, annars vegar til að mæta þeim kostnaði sem ríkið hefur af því að sinna rannsóknum og allri umsýslu með greininni og hins vegar að þjóðin fái sýnilega hlutdeild í arðinum sem verður til við veiðar á nytjastofnum sjávar. Þetta er eiginlega bara svolítið lykilatriði og í Noregi í olíuvinnslunni þá miða menn, í sambærilegri gjaldtöku þegar kemur að olíunni, við heimsmarkaðsverð. Af hverju gera menn það? Það er vegna þess að það er eðlilegra verð að miða við frekar en að fá verðmiða frá fyrirtækjunum sem eiga að greiða gjaldið hrátt. Það sama má segja um raforkusamninga sem gerðir eru hér, þeir miða við heimsmarkaðsverð á áli en (Forseti hringir.) ekki eitthvert verð sem kemur frá fyrirtækjunum.

Því langar mig að spyrja: Hvað er það sem er svona ósanngjarnt við að gera þetta? Hver er ófyrirsjáanleikinn í þessu?