156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[21:57]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Menn höfðu ekki miklar áhyggjur af byggðarlögum landsins þegar framsalið fór á og ekki lágu fyrir neinar greiningar á afleiðingum þess. Fólk fékk það bara í fangið þegar að því kom að togarinn fór og fiskvinnslan lagðist niður o.s.frv., eins og talað hefur verið um í þessum ræðustól. Mér finnst svolítið sérkennilegt og bara furðulegt þegar menn eru að skýla sér bak við það að nú séu allir svo miklir landsbyggðarmenn að tala gegn þessum veiðigjaldahækkunum sem snúa fyrst og fremst að því að það er verið að horfa til raunvirðis aflaheimilda, að miða við það. Þá vilja allir vera landsbyggðarmenn og segja að þetta sé bara skattur á landsbyggðina. Nú eru stærstu fyrirtækin í sjávarútvegi — þeirra mikli arður, hvert rennur hann að stórum hluta? Í fjárfestingar hér á höfuðborgarsvæðinu. Er það ekki áhyggjuefni hjá þeim sem eru að tala gegn þessum breytingum sem eru í raun og veru bara leiðrétting á raunvirði afla upp úr sjó?

Ég vil spyrja: Hvaða leiðir sér hv. þingmaður aðrar en bara tekjuskattshækkanir á þessi stórfyrirtæki — allir vita að það er gífurlegur hagnaður þar á ferðinni og þau geta alveg staðið undir þeim breytingum sem hér er verið að tala um, þeim leiðréttingum sem hér eru? Út af hverju hefur hv. þingmaður þá ekki barist fyrir því að hækka tekjuskatt á þessi fyrirtæki búinn að vera í valdastól mjög lengi? Hvar sér maður merki þess að það hafi verið talað fyrir því að hækka þá tekjuskatt á þessar stórútgerðir? Varðandi greiningar og annað þá liggur það fyrir, við breytingar á þessu frumvarpi frá því sem það var í samráðsgátt, að það mun koma með mjög réttlátum hætti niður á þau fyrirtæki sem eru lítil og meðalstór en menn skýla sér nú á bak við það að hafa sem mestar áhyggjur af þeim.