156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[21:59]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil spyrja hv. þingmann á móti: Ég heyri hvað hv. þingmaður segir, að þetta hafi engin áhrif. Ég er búinn að lesa það fimm eða sex sinnum í frumvarpinu en það standa engar greiningar undir þeirri staðhæfingu. Hvað stendur hér? Eða er hv. þingmaður bara að leggja það til að við látum slag standa og sjáum til eftir nokkur ár, hvort þetta hafi slík neikvæð áhrif, og uppgötvum það þá eftir á? Skattspor sjávarútvegsins var 86 milljarðar, held ég, í fyrra. Ég hef áhyggjur af því að það vaxi ekki. Ég hef áhyggjur af því að það gæti hugsanlega minnkað, að verðmætasköpunin minnki, að skattlagning með þessum hætti hafi neikvæð áhrif. Ég hef áhyggjur af því og ég hef áhyggjur af aukinni samþjöppun. Ég hélt einu sinni að hv. þingmaður væri sammála mér um það. Það getur vel verið að það sé breytt eftir að hv. þingmaður komst í ríkisstjórn með hægri krötum sem hafa alveg haft þá skoðun í áratugi að það sé skynsamlegt að hafa bara örfá stórfyrirtæki og skattleggja þau í botn. Þannig fái menn mestar tekjur í ríkissjóð. En skilar það atvinnu á Suðureyri?