156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[22:01]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Eins og frumvarpið lítur út núna þá hef ég ekki áhyggjur af sambærilegum fyrirtækjum og eru í minni heimabyggð Suðureyri. Ég hef ekki áhyggjur af því. Hv. þingmaður talar um samþjöppun og að þetta muni valda mikilli samþjöppun. Það hefur bara orðið gífurleg samþjöppun í valdatíð hv. þingmanns og ekki hefur hann reynt að sporna við því. Nú eru stórútgerðirnar í aflamarkskerfinu að fjárfesta í krókaflamarkskerfinu og það er ekki talið með þegar verið er að tala um að enginn megi vera yfir 12% í aflahlutdeild í heildarkerfinu. Þetta hefur enginn verið að ræða úr hans flokki, að reyna að stoppa þá þessa samþjöppun aflaheimilda sem hefur bara verið gífurlega hröð síðustu tíu ár. Hvar sér maður merki þess að einhver hafi verið að hafa einhverjar áhyggjur af því? Og hvað bannar fyrirtækjum í dag að selja fiskvinnslu í eigin eigu á einhverju öðru verði en veiðigjöldin munu miðast við?