156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[22:02]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er alrangt hjá hv. þingmanni að sá sem hér stendur hafi ekki talað fyrir því að verja fjölbreytileikann og gert það í raun. Sá sem hér stendur var hins vegar ekki einráður í ríkisstjórn. Ég var einu sinni í ríkisstjórn með hv. þingmanni og það gekk ýmislegt á. Alls konar lög voru sett og stundum var hv. þingmaður mjög ánægður með þau lög en ég mjög ósáttur og örugglega öfugt. Það er enginn einráður í ríkisstjórn. Eða hvað? Forstjóri fiskvinnslunnar á Suðureyri hefur ekki sömu skoðun og hv. þingmaður, hann hefur verulegar áhyggjur af því að hægt sé að reka fiskvinnsluna í framhaldinu. (LRM: Hann hefur ekki séð þetta frumvarp.) — Nei. Og hvað stendur í þessu frumvarpi? Það stendur allt of lítið í þessu frumvarpi. Það vantar allar greiningar sem gætu gert það að verkum að við hefðum einhverja málefnalega fullvissu fyrir þeim staðhæfingum sem þarna eru settar fram aftur og aftur.