156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[22:03]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu. Það þarf ekki að minna á sameiginlega ást okkar á Framsóknarflokknum og sögu hans en hluti af þeirri sögu er auðvitað tilurð kvótakerfisins. Mér fannst þingmaðurinn bæði yfirvegaður en nokkuð angurvær þegar hann lýsti áhyggjum sínum af áhrifum veiðigjalda og þessarar breytingar á byggðir landsins. Þegar ég dreg saman þær áhyggjur þá eiga þær það sammerkt að eiga kannski frekar við um áhrif kvótakerfisins sjálfs og að vera að mestu leyti þegar framkomnar gagnvart gríðarlega mörgum byggðum. Tökum Vestfirði sem fóru úr líklega 15,5% aflahlutdeild árið 1991 í 5,7% árið 2020. Hvar voru veiðigjöldin þá? Ég held því að við ættum frekar að spyrja, í þessu tilviki eftir sýn Framsóknarflokksins, um hvernig við deilum arðinum af auðlindinni, (Forseti hringir.) arðinum sem m.a. þessi hagræðing hefur leitt af sér. Hvernig á að skipta honum milli útgerðarinnar og þjóðarinnar?