veiðigjald.
Virðulegi forseti. Já, ég er búinn að heyra í allan dag þennan söng stjórnarliða um að peningarnir eigi að fara í að byggja vegi og alls konar hluti. Mér vitanlega, og aftur er það kannski upprifjun fyrir þingmenn, eru hvergi í lögum um opinber fjármál markaðir tekjustofnar, engir. Ég ætla að halda því fram hér og reynast sannspár eftir nokkur ár að 2,5 milljarða niðurskurður í menntakerfinu, sem er fyrirhugaður samkvæmt fjármálaáætlun, verði dreginn til baka af því að það er mjög óskynsamlegt upp á verðmætasköpun framtíðarinnar og að peningarnir fari í það. Ég held að peningarnir muni fara í að byggja hjúkrunarheimili af því að þeir peningar sem eru settir í fjármálaáætlunina fara fyrst og fremst í dagpeninga og rekstur en ekki í uppbyggingu hjúkrunarheimila. Ríkisstjórnin hefur að mér skilst fallið frá leið þess sem hér stendur og hæstv. fyrrum heilbrigðisráðherra, Willums Þórs Þórssonar, þar sem við myndum fá einkaaðila til að byggja húsin og gera síðan leigusamning. Mér skilst að ríkisstjórnin sé fallin frá því og ætli þá að byggja þetta af eigin aflafé. Þá peninga vantar. Síðan munum við væntanlega setja einhverja nokkra milljarða í varnar- og öryggismál. Þeir peningar eru heldur ekki í fjármálaáætlun. Ég held því að þessir peningar sem verið er að tala um að eigi að renna í ríkiskassann muni fara í þessa þætti.