156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[22:27]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hennar framsögu varðandi þetta mál um veiðigjald. Hún kom aðeins inn á í máli sínu framlagningu þessa máls, gagnavinnslu og fleira í þeim dúr. Mig langaði aðeins að tengja það við lög um opinber fjármál og beina athygli minni að því sem þar stendur, nánar tiltekið í 6. gr. þeirra þar sem kemur fram að stefna í ríkisfjármálum eigi að byggjast á varfærni, gagnsæi og festu. Þegar frumvarp sem hefur svona víðtæk áhrif er lagt fram án þess að fyrir liggi greining á áhrifum eftir sveitarfélögum og áhrifum sem þetta mun hafa m.a. á litlar og meðalstórar útgerðir, svo ég tali nú ekki um störf og afleidd störf á landsbyggðinni, þá má ætla að ekki sé verið að virða þessi grunngildi. Ef við vitum ekki hver áhrifin verða á útsvarstekjur, atvinnuþróun eða fólksflutninga, hvernig eigum við þá að verja hagsmuni sveitarfélaganna?

Mig langar að spyrja hv. þingmann, af því að ég veit að hún þekkir aðeins til laganna, hvernig hún meti það hvernig þetta frumvarp samræmist lögum um opinber fjármál og grunngildi 6. gr.