veiðigjald.
Virðulegur forseti. Það er auðvitað í gildi sú regla, hvort hún er í lögum um Stjórnarráðið eða einhverjum reglum um Stjórnarráðið, að í öllum frumvörpum á að koma fram mat á áhrifum, alls konar áhrifum, auðvitað ekki síst áhrifum á fjárhag ríkissjóðs og á hagaðila sem um ræðir, svo við notum það leiðinlega orð, á sveitarfélög í þessu sambandi og atvinnugreinina í heild. Ég nefndi það einmitt í minni ræðu að vísað er til þess að gerð hafi verið greining á áhrifum, t.d. á efnahag eða rekstur sjávarútvegsfyrirtækjanna. Í stað þess að birta þá greiningu og gera hana opinbera — ég veit ekki til þess að hún sé opinber, hún er a.m.k. ekki opinber í athugasemdum — þá eru einhver stikkorð um einhverjar niðurstöður. Þetta er auðvitað ekki nægilegt. Það hefði verið kjörið tækifæri og tilefni til þess að birta slíka greiningu í ljósi þess að stærstu hagsmunasamtökin í þessu birta mjög ítarlega greiningu sem KPMG gerði fyrir samtökin þar sem ýmsum tölum og útreikningum er varpað fram. Það hefði bara verið til hagræðis fyrir þingið og í hæsta máta eðlilegt að í athugasemdum með frumvarpinu væri þessu í einhverju svarað, að einhver viðbrögð væru við þessari athugasemd, umsögn sem barst þó eftir samráðsgáttina. Mér finnast mörg frumvörp vera þessu marki brennd í dag að umfjöllun um möguleg áhrif eins og hægt er að meta þau hverju sinni er ákaflega rýr í roðinu.