veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Við höfum auðvitað verið að ræða mikið um útgerðarfyrirtækin og vinnsluna. Það er mikið rætt um þessi stóru sjávarútvegsfyrirtæki en við höfum kannski meiri áhyggjur af minni og meðalstórum vinnslum.
Mig langar aðeins að beina sjónum mínum að sveitarfélögunum sjálfum vegna þess að í mörgum sjávarplássum á landsbyggðinni byggjast allt að 40–50% af útsvarstekjum á sjávarútvegi. Ef fyrirtækin draga saman, vinnsla minnkar og fjárfestingar stöðvast þá eðlilega skerðast tekjustofnar sveitarfélaganna verulega. Hér hafa stjórnarþingmenn sagt það í viðtalsþáttum að þeir muni ekki styðja frumvarpið hafi það áhrif á tekjur sveitarfélaga en hins vegar er alveg ljóst miðað við þessi gögn sem sveitarfélögin létu vinna fyrir sig að það mun hafa veruleg áhrif á tekjur þeirra.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra út í hvaða aðstæður kynnu að skapast þegar sveitarfélögin missa jafnvel allt að helming útsvarstekna sinna vegna samdráttar í sjávarútvegi. Hv. þingmaður kom einnig inn á markmið frumvarpsins og þá umræðu sem stjórnarþingmenn hafa haft uppi um að hér eigi að byggja vegi um allt land. Það er búið að leggja fram fjármálaáætlun og við sjáum enga aukningu í rauninni til samgöngumála, nema þá kannski bara á næsta ári en ekki til næstu fimm ára. (Forseti hringir.) Hvar ætti slíkt að standa til þess að hægt sé að standa við slík orð?