156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[22:32]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég verð að játa að ég fór með rangt mál þegar ég sagði að það væri ekkert mat á áhrifum, kannski ekki á sveitarfélög en mér er rétt og skylt að nefna að í athugasemdum með frumvarpinu er fjallað um áhrif á byggðarlög. Það er kannski aðeins víðtækara en sveitarfélög. Þar kemur fram að verði frumvarpið að lögum muni það hafa óveruleg áhrif á byggðarlög, óveruleg áhrif. Þetta er auðvitað í hrópandi ósamræmi við þær umsagnir sem hafa borist eða a.m.k. umfjöllun frá sveitarstjórum víða um land og það sem maður heyrir í viðræðum við fólk úti á landi. Maður þarf nú kannski ekki að vita mikið um sjávarútveg eða rekstur sveitarfélaga til þess að vita að það er útilokað að þetta frumvarp hafi óveruleg áhrif á byggðarlög. Mér finnst í rauninni ámælisvert að menn hafi ekki lagt meira í þennan kafla en hér er gert. Þetta eru örfáar línur og niðurstaðan er óveruleg áhrif, sem getur engan veginn staðist.