156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[22:34]
Horfa

Kristján Þórður Snæbjarnarson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir hennar ræðu sem var mjög góð. Við erum náttúrlega að ræða gríðarlega mikilvægt mál, auðlindir okkar samfélags og tekjur okkar af þeim auðlindum. Viðvera ráðherra var nefnd sérstaklega, sem er vel og sýnir þennan metnað í málinu sem hefur verið sýndur alla tíð. Bæði var undirbúningurinn mikill og góður og ráðherrarnir leggja sig fram við að fylgja málinu eftir. Þetta mál skiptir ríkisstjórnina og stjórnarmeirihlutann miklu máli sem er að sjálfsögðu sýnt með þessu. Við erum að ræða auðlindir þjóðarinnar, hvernig við ætlum að hafa tekjur af þeim auðlindum og hvernig þeim er skilað til samfélagsins. Það sem mér fannst kannski helst vanta, kannski fór það fram hjá mér, er að mér fannst megininntakið um þessi sanngjörnu veiðigjöld eða auðlindarentuna ekki koma skýrt fram. Mig langaði því að spyrja hv. þingmann um afstöðu þingmannsins til þess að þjóðin njóti arðs af auðlindum sem þjóðin svo sannarlega á. Hver er afstaða þingmannsins til þess að við fáum tekjur af þeim?