veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka kærlega fyrir þessi svör. Nú er það þannig með öll fyrirtæki í landinu að það verður til ákveðið skattspor, eins og notað er í umræðunni. Skattsporið er hins vegar ekki vegna nýtingar á auðlindum heldur vegna annarra þátta sem fyrirtækin eru að greiða skatt af eða launafólks fyrirtækjanna sem greiðir tekjuskatt. Mér finnst mikilvægt að halda því til haga að þarna erum við að tala um gjald sem er eingöngu fyrir þessar auðlindir og ættum við að gera miklu meira af þessu að mínu mati. Síðan komum við inn á umræðu um innviði. Sérstaklega ef við horfum á vestur á firði þá þarf heldur betur að taka til hendinni, laga vegi og byggja upp t.d. Vestfjarðaveg, hann er mjög illa farinn svo maður nefni nú eitthvað. Við þurfum sem samfélag að reka ríkissjóð þannig að við fáum tekjur og getum varið þeim í uppbyggingu innviða. Að mínu mati skiptir það mestu máli. Auðvitað erum við ekki að segja nákvæmlega að þessi króna fari í þetta verkefni en þessir fjármunir þurfa að fara í innviðauppbyggingu. (Forseti hringir.) Það er klárt mál.