veiðigjald.
Auðvitað nýta allar aðrar atvinnugreinar náttúruauðlindir Íslands. Ég myndi ekki búa hér nema vegna auðlinda Íslands. Er grænmetisbóndi sem ræktar tómata ekki að nýta auðlind Íslands, fallvötnin, og þar fram eftir götunum? Auðvitað nýtum við öll auðlindir. Hins vegar er það bara sjávarútvegurinn sem fær á sig sérstakt auðlindagjald. Ef hv. þingmaður er að spyrja mig sérstaklega um afstöðu mína til þess þá var ég í upphafi mótfallin því og ég er það auðvitað enn þá, en það skip er bara farið. Það er komið auðlindagjald. Ég vissi að það hefði í för með sér umræðu eins og þessa 10 og 20 árum síðar. Jafnvel þó að þetta frumvarp verði samþykkt mun umræðan ekkert hætta. Af hverju vill ríkisstjórnin ekki þrefalda auðlindagjaldið? Af hverju bara tvöföldun? Hvaða greining liggur að baki tvöföldun veiðigjaldsins? Af hverju ekki þreföldun? Þessi umræða mun ekkert hætta. Ég bendi bara á að það þarf að vera eitthvert vit í þessu þannig að menn geti áttað sig á því á hverju menn eru að byggja þegar þeir hækka þennan sérstaka skatt umfram tekjuskattinn og umfram allan annan skatt sem þessi grein ber og þar með, nota bene, þeir sem starfa við greinina á öllum sviðum.