156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[22:41]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu sem var alveg fyrirtaksgóð í þessu stóra og mikla máli sem við erum að ræða í dag. Eðlilega eru skiptar skoðanir eins og var svo sem vitað fyrir fram. Mig langar aðeins að fara í andsvör við hv. þingmann um það sem í raun og veru kemur fram í greinargerðinni með þessu ágæta frumvarpi. Þegar maður er búinn að lesa umsagnirnar að megninu til frá sveitarfélögum og hagaðilum þá er alveg klárt að þarna eru ákveðnar línur sem þessir aðilar hafa miklar áhyggjur af í því sem kemur fram í frumvarpinu. Í þessari ágætu greinargerð með frumvarpinu er svolítið verið að svara þessu eða gerð er tilraun til að svara þessum athugasemdum og áhyggjum. Það sem er sammerkt með þessu öllu, og langar mig svolítið að fá álit hv. þingmanns á því, er að það virðist vera alveg sama hvar við drepum niður fæti í þessari greinargerð, hvort sem verið er að tala um skattahækkanirnar eða áhrif frumvarpsins á sveitarfélögin sem fjölmörg hafa lýst verulegum áhyggjum af þessu frumvarpi, ekkert er gert með þetta. Engar áhyggjur, menn þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur. Þetta hefur engin áhrif á sveitarfélögin. Við horfum síðan á áhrif á fjárfestingar og samkeppnishæfni: Þetta mun ekki hafa nein áhrif á það, engar áhyggjur af því. Litlar og meðalstórar útgerðir og frítekjumarkið: Nei, nei, við erum búin að taka það. Aukin samþjöppun í sjávarútvegi: Nei, það á ekki við. Það mun ekki gerast, engar áhyggjur af því. Svo gæti ég haldið áfram: Mat á áhrifum, efnahagsleg áhrif, áhrif á ríkissjóð, áhrif á samkeppni og fjárfestingargetu. Þetta er bara allt slegið út af borðinu. Það eru engar áhyggjur sem menn þurfa að hafa. Maður spyr sig: Hvernig getur það verið að sveitarfélög landsins og þessir hagaðilar séu að lesa þetta frumvarp með svo röngum gleraugum? Getur hv. þingmaður gefið einhverja skýringu á því (Forseti hringir.) hvernig þetta misræmi getur verið svona rosalegt?