156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[22:46]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið og deili þeim áhyggjum með hv. þingmanni. Ég held að mögulega sé ríkisstjórnin rangstæð í þessu máli. Alla vega er mjög sérstakt að lesa þessar umsagnir frá öllum þessum sveitarfélögum sem eru með alls konar samsetningu yfir hið pólitíska svið. Því er ekki einhver ein flokkslína sem gengur yfir heldur eru allir okkar flokkar þarna samankomnir og hafa þessar áhyggjur. Þetta er því ekki einhvers konar pólitísk lína heldur eru þetta raunverulegar áhyggjur sveitarfélaga af því að staða þeirra muni verða verri eftir að þetta frumvarp verður að lögum. Það er einhvern veginn slegið á það allt saman.

Það sem mig langaði aðeins að koma inn á er að í raun og veru er gulrótin í þessu öllu samgöngurnar. Jú, það vantar pening í samgöngur og við viljum öll betri samgöngur. Það á að setja þetta veiðigjald í samgöngur sem á einhvern veginn að selja okkur að þetta sé frábært mál. Nú hef ég lesið fjármálaáætlun og það er ekkert í fjármálaáætluninni, ekki stafkrókur um það að þessir fjármunir eigi að fara í samgöngur, ekkert. Enda vitum við að það eru engir markaðir tekjustofnar í lögum um opinber fjármál og því er engin vissa fyrir þessu. En það er svolítið sérstakt ef hæstv. ríkisstjórn er svona ákveðin í því að setja þetta í samgöngumálin af hverju ekki er gert ráð fyrir því í fjármálaáætlun til 2030. Deilir hv. þingmaður, kannski ekki áhyggjum en furðu sinni á því að ekki sé gert ráð fyrir þessu fjármagni í fjármálaáætluninni ef það er raunverulegur vilji ríkisstjórnarinnar að setja fjármagnið í samgöngurnar?