veiðigjald.
Virðulegur forseti. Jú, ég tek undir með hv. þingmanni að það hefði verið eðlilegt að flagga fyrirætlan um aukið fé, svona utan við það sem menn hafa verið að tala um hvort eð er, flagga henni í fjármálaáætlun ef það er einbeittur ásetningur ríkisstjórnarinnar. En ég þori alveg að fullyrða það við hv. þingmann að jafnvel þótt það hefði verið gert þá er það ekki þannig að menn ráðist í einhverjar svona aðgerðir til að sækja sér fé í eitthvert tiltekið verkefni, ekki bara af því að það eru engir markaðir tekjustofnar og ekki gert ráð fyrir þeim heldur vegna þess að skattfé fer allt í hítina. Ég nefndi dæmi í einni ræðu minni um tiltekin mál. Ég get bætt við og rifjað upp sölu á Landssímanum sáluga. Þar áttu 60 milljarðar að fara í að byggja Landspítala. Hann er ekki enn þá risinn. Það er bara náttúrulögmál að þetta fer í hítina.