156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[22:50]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Við erum að ræða hér frumvarp um breytingar á veiðigjöldum. Í málinu sem hér er til umræðu má segja að það sé ekki eingöngu verið að ræða um fiskinn í sjónum heldur einnig líka bara hvernig við sjáum fyrir okkur samfélagið til framtíðar, hvernig við viljum sjá í rauninni Ísland til framtíðar og byggð um land allt, framtíð byggðarlaga, framtíð verðmætasköpunar og framtíð trausts milli þjóðar og þeirra sem nýta sameiginlega auðlind. Þetta snýst því ekki bara um veiðigjald. Þetta snýst um það hvernig við sem samfélag viljum haga samskiptum ríkis og atvinnulífs og hvert við stefnum með sameiginlega auðlind okkar allra.

Það er auðvitað fullkomlega réttmætt að þjóðin fái arð af nýtingu fiskimiðanna og ég held að það séu nú ansi fáir sem draga það í efa en stóra spurningin er kannski hvernig við nálgumst þetta. Með frumvarpinu sem hér liggur fyrir er lagt til að veiðigjöld verði hækkuð verulega, með útreikningum byggðum á afurðaverði, ekki hráefnisverði, sem þýðir í raun að vinnslan, verðmætasköpunin, er skattlögð með sama hætti og aðgangur að auðlind. Þetta er í rauninni meginvandi frumvarpsins og grundvallarþversögn því að íslenskur sjávarútvegur hefur þróast yfir áratugi og orðið ein samkeppnishæfasta atvinnugrein þjóðarinnar. Ég held að hvert sem við þingmenn förum um heiminn þá segjum við afar stolt frá því að hér sé í rauninni sjálfbær sjávarútvegur en það hefur ekkert gerst af sjálfu sér. Þetta byggist auðvitað á nýsköpun og tækni, þetta byggist á markaðssetningu, sérfræðiþekkingu og ekki síður ástríðu þeirra sem sjá um að veiða, vinna og selja síðan afurðirnar. Þetta byggist á samþættingu veiða og vinnslu sem hefur skilað okkur miklum verðmætum sem margfaldast í rauninni með hverju stigi í virðiskeðjunni. Þegar við leggjum á veiðigjald út frá afurðaverði erum við að skattleggja þessar vinnslur óháð því hvort fyrirtækið skili hagnaði eða ekki. Mér finnst þetta hvorki málefnaleg né réttlát nálgun.

Virðulegi forseti. Áhrifin eru ekki aðeins töluleg, þau eru líka samfélagsleg. Í fjölmörgum sveitarfélögum landsins eru fyrirtæki sem byggja einmitt tilveru sína á sjávarútvegi og samfélög sem byggja sína tilveru einmitt á fyrirtækjunum. Þar eru störf í fiskvinnslu, á hafnarsvæðum, í þjónustu við tækni, flutninga og í rauninni allt sem styður við verðmætasköpun í fiskveiðum. Þegar við sjáum að veiðigjaldið er hækkað með þessum hætti án aðgreiningar á milli veiða og vinnslu þá er það alveg augljóst að það mun hafa bein áhrif á störf og byggðir, því að þegar tekjur sveitarfélaga dragast saman vegna þess að vinnsla minnkar og fjárfestingar stöðvast þá flytur fólk burt. Þetta er ekki bara reikningsdæmi, þetta eru í rauninni bara afleiðingar sem núverandi ríkisstjórn mun þá bera ábyrgð á. Við höfum séð teikn um þetta og sveitarfélög hafa varað við þessu um allt land því að í sumum sveitarfélögum kemur nær helmingur útsvarstekna frá sjávarútvegi, þannig að það þarf ekki flókna greiningu til að sjá hvað gerist ef sú undirstaða veikist.

Virðulegi forseti. Mig langar aðeins að beina sjónum mínum að því sem blasir við í samfélagi eins og t.d. Patreksfirði, þar sem sjávarútvegur er ekki bara atvinnugrein heldur í rauninni lífæð samfélagsins. Fyrirtæki sem þar starfar, stærsta atvinnufyrirtækið á staðnum, hefur undanfarin fjögur ár fjárfest að meðaltali fyrir um 240 millj. kr. árlega. Það hefur þýtt endurnýjun tækja við vinnslu kerfa og aukna verðmætasköpun. Samkvæmt útreikningum sem liggja fyrir hefði það fyrirtæki einungis getað fjárfest fyrir 26 milljónir á ári með nýja gjaldinu í stað 86 milljóna áður. Það jafngildir 64% samdrætti í fjárfestingargetu. Þetta eru ekki einhverjar tölulegar tilgátur. Þetta er einfalt reikningsdæmi sem lýsir áhrifunum skýrt, verði þetta frumvarp að lögum óbreytt.

En það er ekki bara fjárfesting, það er í rauninni líka viss framtíðarsýn sem tapast, því að með minnkandi fjármagni til endurnýjunar og þróunar þá hverfur líka möguleikinn til að taka þátt í nýjum straumum, t.d. að þróa áfram vinnslu, nýja vöruþróun og tækniinnviði. Þetta þýðir að það sem hefði getað verið sjálfbært, skapandi og einmitt hugsandi til framtíðar verður í staðinn varnarbarátta fyrir tilvist fyrirtækis og jafnvel sveitarfélagsins í kringum það.

Á þessum stað starfar um fimmtungur bæjarbúa hjá þessu eina fyrirtæki. Ef starfsemin dregst saman eða vinnslan veikist þá sjáum við að þetta hefur ekki bara áhrif á fyrirtækið, þetta hefur áhrif á Patreksfjörð. Þetta hefur áhrif á byggðina allt þar í kring, því við vitum að fólk fer þá í burtu, tekjur sveitarfélagsins minnka. Ég tala nú ekki um að þegar makar líka fylgja með sem sinna öðrum störfum í sveitarfélaginu þá sjáum við hvernig byggðaþróunin getur gjörsamlega snúist við.

Þetta er ekkert einangrað dæmi sem ég er að tala um hér. Þetta er á fleiri stöðum og við höfum fjölmörg fyrirtæki og líka byggðarlög um land allt þar sem sjávarútvegurinn er einmitt meginstoð samfélagsins, þar sem atvinnulíf, skólastarf, velferðarþjónusta og samfélag eru tengd einmitt þessari einu atvinnugrein. Því er eðlilegt að við spyrjum okkur hvort það sé rétt að taka ákvörðun sem getur haft þessi áhrif án þess að það liggi einmitt fyrir heildstæð, formleg og gagnsæ áhrifagreining.

Virðulegur forseti. Samkvæmt 6. gr. laga um opinber fjármál ber stjórnvöldum að fylgja ákveðnum grunngildum og þar stendur m.a., með leyfi forseta:

„2. Varfærni sem miðar að hæfilegu jafnvægi á milli tekna og gjalda, og að ekki séu teknar ákvarðanir […] sem geta haft ófyrirséðar og neikvæðar afleiðingar.“

Einnig stendur:

„4. Festu sem felst í því að forðast óvæntar eða fyrirvaralitlar breytingar frá gildandi stefnu og áætlunum um þróun opinberra fjármála.

5. Gagnsæi sem felst í því að sett séu auðsæ og mælanleg markmið til meðallangs tíma …“

Hækkun veiðigjaldsins uppfyllir ekkert af þessu. Hækkunin er fyrirvaralítil, hún er án aðhalds á langtímamarkmiðum og án þess að unnin hafi verið samræmd opinber áhrifagreining. Þetta brýtur í bága við varfærni, þetta brýtur í bága við festu og þetta brýtur í bága við gagnsæi. Því má spyrja sig: Ef þetta væri breyting sem færi svona með t.d. sprotafyrirtæki í tæknigeiranum á höfuðborgarsvæðinu, myndi hún líðast án rýni og samráðs?

Það er afar mikilvægt að við horfum af ábyrgð á þetta mál og áhrifin. Það er hægt að hækka tekjur ríkissjóðs en það þarf að gera með réttlætanlegum og sjálfbærum hætti. Við í Framsókn höfum talað fyrir betri leið og sú leið felst í því að beina álögum frekar að þeim sem taka raunverulegan arð út úr greininni með því að hækka fjármagnstekjuskatt á arðgreiðslur og söluhagnað sem kemur frá sjávarútvegi. Það væri að okkar mati málefnaleg nálgun, að skattleggja tekjur þegar þær eru teknar út úr atvinnurekstrinum frekar en að leggja skatt á reksturinn sjálfan og veikja þannig hæfni hans til að skila af sér verðmætum, störfum og stöðugleika. Það væri einnig skattlagning sem væri fyrirsjáanleg og gagnsæ. Arður er skráður, greiðslur eru tilkynntar og skatthlutfallið væri skilgreint. Það væri hugsanlega hægt að þrepaskipta, halda núverandi 22% fyrir minni eigendur, 25% fyrir stærri og 28% jafnvel á mjög háar greiðslur — nú er ég að tala algerlega án ábyrgðar. En með þessu væri kannski verið að nálgast það að tryggja jafnræði og réttlæti. Þetta er auðvitað ekkert ný hugmynd. Við höfum áður horft til fjármagnstekjuskatts sem leiðar til tekjujöfnunar og hér höfum við raunverulega og sértæka notkun hans til að tryggja að auðlind sem er einmitt sameign þjóðarinnar skili arði til þjóðarinnar án þess að draga úr verðmætasköpun, án þess að skaða byggð.

Það er líka tímabært að endurskoða hvernig við nálgumst samtalið við atvinnugreinar og að samráð sé ekki sýndarmennska því að þetta er ekkert eitthvert einfalt form sem hægt er að hunsa og reyna að haka í einhver box. Þetta snýst um að hlusta, snýst um það að vinna með aðilum sem koma einmitt með ábendingar og umsagnir. Þetta snýst líka um að sýna skilning og taka tillit til ábendinga þegar svo er metið hverju sinni, en ef slíkt er ekki gert að þá færa a.m.k. rök fyrir því af hverju slíkt er ekki gert í það skipti.

Ef yfir 100 umsagnir benda á óljósar forsendur, skort á gagnsæi og áhrif sem ráðuneytið virðist ekki hafa metið er afar mikilvægt líka að við stöldrum við því að það er sagt að ástæðan fyrir því að skammur tími hafi verið gefinn til umsagnar sé til þess að eiga umræðuna hér á þinginu. Það er afar mikilvægt að eiga umræðu hér á þinginu en það er líka mjög mikilvægt að fá vönduð gögn hér inn til þingsins einmitt til að ræða og taka afstöðu til.

Það er mikilvægt að við setjum okkur einmitt markmið, að hafa gagnsætt útreikningslíkan sem birtir forsendur og viðmið opinberlega, að tryggja að áhrif nýrrar gjaldtöku verði metin eftir byggð, eftir stærð fyrirtækja og eftir afkomugetu, og síðast en ekki síst að hækkanir séu gerðar í áföngum yfir eitthvert árabil þannig að aðlögunin sé möguleg og tryggt að samkeppnishæfni glatist ekki á leiðinni. Það væri ábyrg leið og það væri virðing fyrir atvinnulífinu. Það væri virðing fyrir sveitarfélögunum. Það væri virðing fyrir landsbyggðinni. Það væri raunveruleg leið til að ná sátt um nýtingu sameiginlegra auðlinda því ég er hrædd um að þetta frumvarp sem hér er til umræðu sé ekki til slíks, þ.e. að ná raunverulegri sátt, því að við berum ábyrgð og ekki bara á ríkissjóði. Þó að það sé mjög mikilvægt þá berum við líka ábyrgð á jafnvægi og framtíð og samfélaginu öllu. Við getum auðvitað gengið þessa leið, hækkað skatt á arðgreiðslur og gert það í sátt og samlyndi einmitt með langtímasýn. Ég tel að það sé afar mikilvægt að við skoðum þann kost áður en lengra er haldið.

Ég ætla að láta þetta duga í bili í umræðunni um þetta mál hér en vona að þessi umræða verði til þess að við fáum dýpri skilning á málinu og líka kannski möguleikum á því hvað hægt er að gera í hv. nefnd til breytingar ef vilji er fyrir því.