156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[23:02]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir ræðuna. Það er svolítið athyglisvert við þetta mál að þetta er ekki bara stjórn og stjórnarandstaða að takast á heldur er algjör grundvallarmunur á þeirri hugmyndafræði sem rekur áfram stjórnarflokkana varðandi það hvað veiðigjaldið er og hvað það eigi að innibera og því sem kemur frá stjórnarandstöðuflokkunum, þótt ég eigi nú reyndar stundum svolítið erfitt með að átta mig á því hvar Framsókn stendur í málinu því að þar tala forystumenn flokksins svolítið austur og vestur og hafa gert það á undanförnum árum. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður sagði að auðvitað er mjög brýnt að ná fram meiri sátt um sjávarútveginn. Það er auðvitað sorglegt til þess að vita með grein sem skiptir landið og þjóðina svona miklu máli og skilar svona miklum verðmætum í þjóðarbúið að það skuli vera endalausar deilur og endalaust ósætti um greinina. Það sem ég ætla hins vegar að gera athugasemdir við er að það náist einhver sátt um það að láta þetta bara snúast um hefðbundna skatta og jafnvel einhverja fjármagnstekjuskatta, eins og ég heyrði hv. þingmann tala um, á þá sem hafa fjármagnstekjur úr greininni. Menn eru svolítið að horfa fram hjá því að með veiðigjaldi, í lögum um veiðigjald, er gengið út frá tvennu og ég held að við ættum ekkert að rjúfa sáttina um það. Annars vegar er tekið gjald til að mæta þeim kostnaði sem ríkið hefur af umsýslu með greininni, af rannsóknum, þróun, skipulagi og öllu því. Síðan, eins og ég ætla að segja í enn eitt skiptið, að þjóðinni eigi að vera tryggður skynsamlegur hluti af þeim hagnaði sem greinin færir okkur, þ.e. sýnileg hlutdeild í afkomu við veiðar á nytjastofnum sjávar. Þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann: Ef við kippum þessu úr sambandi, þ.e. að það verði sýnileg gjaldtaka, gjald fyrir að fá að veiða fiskinn sem við eigum öll, (Forseti hringir.) hvernig næst þá sátt? Því að þetta hefur einmitt verið deiluefnið undanfarna áratugi.