156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[23:07]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir þetta. Það er ánægjulegt að eiga skoðanaskipti í þessum sal um þetta. Mér hefur fundist þetta hafa verið að mestu mjög málefnaleg og góð umræða. Það sést á þátttöku í umræðunni að þetta er mál sem skiptir okkur öll miklu máli og skal engan undra.

Það er alveg hárrétt að það eru sex flokkar á Alþingi og ég held að engir tveir þeirra séu nákvæmlega eins í stefnu sinni í sjávarútvegsmálum. Það er auðvitað áherslu- og blæbrigðamunur á milli flokkanna og svo er einnig innan ríkisstjórnarinnar. Við höfum t.d. ekki sömu skoðun og Flokkur fólksins á mörgu sem snýr að sjávarútvegi og öfugt. En við erum hins vegar sammála um ákveðin grundvallaratriði sem við erum að reyna að ná fram með þessu máli, þ.e. að fanga, leyfi ég mér að segja, þau viðteknu sannindi sem eru byggð á greiningum á afkomutölum sjávarútvegsins í gegnum tíðina. Til að mynda því hversu mikið af fjármagni hefur farið úr greininni í óskyldan rekstur, sem er auðvitað gott að mjög mörgu leyti en þetta eru þannig fjárhæðir að þær færa okkur heim sanninn um það að greinin er aflögufær um að greiða meira. Það sem er auðvitað verið að gera er að ekki er verið að hækka hlutfallið heldur er verið að breyta því hvernig við finnum út veiðigjaldið. Þess vegna er kannski hægt að gera þetta í þessu skrefi eins og hér er gert. Það var nú einmitt þannig að síðasta ríkisstjórn hafði hug á að hækka veiðigjöldin. Hvort sem sú hækkun hefði átt að koma á einu bretti eða ekki þá er það engu að síður þannig með þær röksemdir að hækkanirnar núna setji allt á hliðina að hið sama á auðvitað við þær hækkanir sem voru fyrirhugaðar af síðustu ríkisstjórn. Það hlýtur eiginlega að segja sig sjálft.

Ég spyr aftur hv. þingmann: (Forseti hringir.) Er það í alvöru skoðun þingmannsins að greinin muni ekki þola þessa viðbót við veiðigjaldið sem hér er verið að leggja til? (Forseti hringir.) Munu fyrirtæki fara á hausinn? Munu fiskvinnslur fara á hausinn?