156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[23:10]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir seinna andsvar. Ég ætla að gera orð hv. þm. Sigríðar Á. Andersen að mínum: Það er barnaskapur að halda annað en að þetta frumvarp muni hafa áhrif. Það mun hafa áhrif en hvort það muni gera einhver fyrirtæki gjaldþrota ætla ég ekki að svara fyrir. Það mun klárlega hafa áhrif á rekstur t.d. minni og meðalstórra vinnslna um land allt. Hv. þingmaður kom inn á það að þjóðinni verði tryggður skynsamlegur hluti af nytjastofnum sjávar. Hvað er skynsamlegur hluti af nytjastofnum sjávar? Hvernig getum við metið það? Það er eitt að verðmeta fiskinn sem kemur upp úr sjónum en það er annað að verðmeta afurðina sem kemur úr vinnslunni þegar búið er að vinna fiskinn. Þar skapast tekjurnar. Þar skapast hækkað verð fyrir afurðina þegar við seljum hana úr landi. Það er mikilvægt að aðskilja veiðar og vinnslu og það er það sem við höfum líka verið að benda á í okkar máli hér í dag.