156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[23:11]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil nú byrja á að þakka þingmanninum fyrir fína ræðu og ég vildi eiga orðastað við hana um áhrif á minni byggðir sem byggja á sjávarútvegi. Hún nefndi hér einmitt áhrif á byggð sem ég þekki ágætlega og ég þekki reyndar ágætlega byggðasögu Vestfjarða, hún nefnir Patreksfjörð réttilega. Það hefði kannski líka verið áhugavert að nefna sögu Tálknafjarðar en þar hafa nýverið verið seldar aflaheimildir úr byggðarlagi og ekkert höfum við svo sem með það að gera hér. En ég hef haft miklar áhyggjur af áhrifum á minni og litlar útgerðir og þess vegna var ég sérstaklega ánægð með að sjá að frítekjumarkið var hækkað verulega. Þá sá ég að EBITDA þess fyrirtækis sem hún nefndi hér áðan, bara með því að skoða ársreikning fyrirtækisins, var 405 millj. kr. árið 2023, ársreikningur fyrir 2024 er ekki kominn fram, af því að þetta hefur áhrif á þessi minni fyrirtæki og þetta þýðir kannski að veiðigjöldin hjá þessu fyrirtæki, þó að maður eigi kannski ekki að tala mikið um einstaka fyrirtæki, eru að hækka úr 58 milljónum í 80.

Mig langar að spyrja þingmanninn hvort hún telji ekki að þetta sé rétt aðferðafræði, að miða við frítekjumarkið. Við sjáum það í þeim greiningum sem hér liggja fyrir að greiðendur veiðigjalda eru að mestum hluta tíu stærstu sjávarútvegsfyrirtæki þessa lands, þau greiða 67% af veiðigjaldinu og 30 stærstu fyrirtækin borga 90%. Telur hún þá ekki að með þessari ráðstöfun sé verið að verja minni og litlu útgerðir þessa lands? Ég deili þeirri skoðun, það verðum við að gera af því að við viljum sjá blómlega byggð um allt land.