156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[23:13]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir andsvarið. Ég held að það sé afar mikilvægt að við séum að horfa á heildarmyndina og jú, ég nefndi eitt sveitarfélag. Ég get nefnt annað, t.d. Fjarðabyggð. Þar eru fyrirtæki að horfa upp á veiðigjöldin fara úr 1,8 milljörðum í tæpa 5. Grýtubakkahreppur sem ég þekki líka — þar eru 40% af útsvarstekjunum frá sjávarútvegi og vinnslu. Það að hækka frítekjumarkið er jákvætt og sú hækkun sem varð núna á milli framlagninga er í rauninni bara til bóta, vissulega. En ég hef sagt hér og mun halda því til streitu að ég tel að það að skattleggja frekar arðgreiðslur fyrirtækjanna sé skynsamlegri leið heldur en að koma með einhverja plástra hér og þar.