veiðigjald.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka þingmanninum fyrir svarið. Hún nefnir útgerðir fyrir austan og þar eru sum af flottustu sjávarútvegsfyrirtækjum þessa lands, fyrirtæki sem eru að borga sér fleiri milljarða í arðgreiðslur á hverju einasta ári og ég er stolt af þessum fyrirtækjum, hvað það gengur vel, gengur alveg gríðarlega vel og þá auðvitað leggst gjaldið mikið á Fjarðabyggð sem skartar þessum flottu fyrirtækjum.
Mig langar líka aðeins að ræða við hana um þau gögn sem liggja fyrir í málinu. Á bls. 22 í frumvarpinu er fjallað ítarlega um áhrif frumvarpsins á efnahag og ríkissjóð og fjárfestingargetu og áhrif á byggðarlög. Það er eftir póstnúmerum. Mig langar kannski að velta því upp við þingmanninn: Hvaða gögn telur hún skorta við vinnslu þessa frumvarps?