156. löggjafarþing — 34. fundur,  5. maí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[23:15]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Örnu Láru Jónsdóttur fyrir seinna andsvarið. Hún nefnir hér að það sé fyrirtæki sem greiði fleiri milljarða í arðgreiðslur á ári og að hún sé stolt af því fyrirtæki. Það er einmitt það sem við í Framsókn höfum verið að benda á. Er ekki skynsamlegra einmitt að skattleggja arðgreiðslurnar sem eru greiddar út úr fyrirtækinu og varða þann hagnað sem fyrirtæki í rauninni eignast af auðlindinni okkar frekar en að gera það áður en þessi hagnaður verður til? Ég held að það sé afar mikilvægt að gera það því að það að skattleggja arðgreiðslurnar mun hafa þau áhrif að þá er kannski meiri hvati líka til fjárfestingar og meira gagnsæi. Ég held að það sé afar mikilvægt og gæti jafnvel verið skynsamlegri leið heldur en er verið að leggja til hér. En ég fagna því að við hv. þingmaður séum saman í liði varðandi það að standa vörð um byggðir landsins.