veiðigjald.
Virðulegur forseti. Þessar umræður í dag hafa einkennst af hugmyndum hv. þingmanna um hvernig eyða megi peningunum í krukkunni sem menn vilja ganga í, menn greinir á um aðferðina við skattlagninguna. Mér hefur hins vegar þótt vanta umræðu um einhverja framtíðarsýn fyrir sjávarútveginn í heild. Það hefði að ósekju mátt vera í þessu frumvarpi eins og margt annað sem vantaði í athugasemdum við frumvarpið, þ.e. hvaða sýn menn hafa á verðmætasköpun í sjávarútvegi til framtíðar. Þótt ég sé þingmaður fyrir mesta sjávarútvegspláss landsins, Reykjavíkurkjördæmi norður, er hv. þingmaður kannski í aðeins minna sveitarfélagi — hún nefndi Patreksfjörð, sem hún tengist reyndar ekki. En það væri kannski fróðlegt að heyra hennar lýsingu á hvernig hún upplifir landsbyggðina að þessu leyti, hvort það sé hugur í mönnum, hvort menn séu t.d. sammála því mati sjávarútvegsins sjálfs að hægt sé að tvöfalda verðmætasköpun sjávarútvegs á næstu tíu árum. Og nú er farin sú leið að tvöfalda skattinn, veiðigjaldið, í einu vetfangi. Hefur hv. þingmaður einhver sjónarmið inn í þá umræðu, hvernig þetta hafi áhrif á heildarmyndina og verðmætasköpun til framtíðar? Og já, ég kem kannski aðeins inn á þetta skattlagningarblæti þingmanna í seinna andsvari sem hv. þingmaður er ekki alfarið saklaus af heldur.